77 ára gamall maður frá Úkraínu lést eftir að hafa sigrað í kappáti. Maðurinn át 10 fylltar hveitibollur á hálfri mínútu. Sigurlaunin voru einn lítri af sýrðum rjóma.
Stuttu eftir að maðurinn tók við sigurlaununum fann hann fyrir miklum magaverk og lést í kjölfarið.