Egypskur maður hefur verið dæmdur í þriggja ára fangelsi ásamt þrælkunarvinnu fyrir að viðhafa móðgandi ummæli um íslamstrú á Facebook.
Niðurstaða dómstóls í Kaíró var sú að Ayman Yusef Mansur hefði „vísvitandi móðgað reisn íslamstrúar og ráðist að henni með móðgunum og háðsglósum á Facebook.“