„Það eru nokkur skilti vitlaus og við erum á fullu að laga þetta, við höfum fengið þetta að utan,“ segir Halldór Ó. Sigurðsson, framkvæmdastjóri byggingavöruverslunarinnar Bauhaus, en ljósmyndari Morgunblaðsins rakst á nokkur skringilega orðuð auglýsingaskilti fyrir utan verslunina í gær sem hefðu eflaust farið fyrir hjartað á mörgum íslenskukennaranum. Að sögn Halldórs komu öll skiltin við verslunina að utan.