Lið Belgíu bar sigur úr býtum í fyrstu liðaheimsmeistarakeppni í blindri vínsmökkun. Danir urðu í öðru sæti og Englendingar í öðru.
Philippe Ketelslegers, Filip Mesdom, Eric Derenne og Serge Condens sigruðu keppnina fyrir hönd Belgíu, sem haldin var í bænum Leognan í suðvesturhluta Frakklands.
16 lið tóku þátt í keppninni, þeirra á meðal Suður Afríka, Kína, Rússland og Argentína
Markmiðið með keppninni er „að leiða saman vínsmökkunaráhugamenn hvaðanæva að úr heiminum, sem upplifa sig stundum einangraða í heimalöndum sínum, sagði Philippe de Cantenac, blaðamaður hjá La Revue du Vin de France, frönsku tímariti sem skipulagði keppnina í samtali við AFP. Tímaritið hefur haldið Evrópukeppni í greininni frá árinu 2008.
Liðin þurftu að bera kennsl á 12 eðalvín víðsvegar að úr heiminum, blindandi. Meðal þess sem krafist var af keppendum var að þeir tilgreindu upprunaland vínsins, þrúgurnar sem notaðar voru, ræktunarstað þeirra og árgang.