„Þær virðast stoltar af samkynhneigð sinni. Þær leiðast ástleitnar um garðinn og virðast mjög hamingjusamar saman,“ segir Mor Porat, talsmaður Safari Zoo í Ísrael, um tvær kvenkyns mörgæsir sem hafa parað sig saman og byggt hreiður.
Porat segir að starfsmenn hafi haldið fyrst um sinn að önnur þeirra væri karlkyns. Hins vegar kom annað í ljós þegar tekið var úr þeim blóð til rannsóknar. Reyndust mörgæsirnar báðar kvenkyns.