Aðstoðarvarðstjóri í lögreglunni í Osaka hefur verið leystur frá störfum fyrir að neyða undirmenn sína til þess að úða í sig hamborgurum og kleinuhringjum til þess að herða þá.
Maðurinn á að hafa ítrekað fyrirskipað fjórum ungum lögreglumönnum að troða í sig 15 hamborgurum, 15 kleinuhringjum, fjórum skömmtum af núðlum eða 3-5 lítrum af mjólkurkaffi.
Á hann að hafa gert þetta til þess að herða þá þar sem þeir væru ekki nægjanlega atorkusamir í starfi. Ekki nóg með það þá þurftu nýliðarnir að greiða sjálfir fyrir allan matinn.