Tom Hannah, 73 ára eldri borgari frá Skotlandi, sem þurfti að láta fjarlægja báða fætur, má ekki leggja í fatlaðastæði vegna þess að hann þykir ekki nægilega fatlaður.
Hannah fór í tvær aðgerðir á síðasta ári til þess að fjarlægja neðsta part fótanna vegna vandamála í blóðrásinni.
Hannah fékk gervilimi í stað fótanna og styðst við hækjur. Eftir aðgerðirnar var honum gefið tímabundinn passi til þess að leggja í fatlaðastæði. Þegar Hannah ætlaði að endurnýja passann var honum sagt að hann væri ekki nógu fatlaður til þess að leggja í fatlaðastæði vegna þess að hann getur gengið tæplega 20 metra að sjálfdáðum.
Hannah er mjög ósáttur við borgarráð í Fife og segir sig eiga mjög erfitt með gang og flesta hreyfingu.
Borgarráðið hefur boðið Hannah að koma í rannsókn þar sem lagt verður mat á hreyfigetu hans til þess til þess að leysa málið.