Breska fréttastofan Sky kvaðst í morgun hafa það eftir þingmönnum breska Verkamannaflokksins að Tony Blair forsætisráðherra muni láta af leiðtogaembættinu í flokknum fjórða maí og að nýr leiðtogi verði kjörinn 15. júní. Þá muni Blair láta af embætti forsætisráðherra og nýkjörinn flokksleiðtogi taka við.