Pólsk stúlka framdi sjálfsmorð eftir niðurlægingu bekkjarbræðra

Fjórtán ára gömul pólsk stúlka framdi sjálfsmorð í kjölfar þess að fimm bekkjarbræður hennar klæddu hana úr öllum fötunum og settu á svið nauðgun hennar fyrir framan aðra bekkjarfélaga þeirra í skóla í borginni Gdansk í norðurhluta Póllands. Einn drengjanna tók atvikið upp með farsíma sínum. Atvikið átti sér stað síðastliðinn föstudag.

Bekkjarsystur stúlkunnar reyndu að hjálpa henni en þeim tókst ekki að losa hana frá drengjunum fyrr en atvikið hafði átt sér stað.

Yfirkennari skólans reyndi að láta foreldra stúlkunnar vita, en tókst einungis að ná sambandi við bróður hennar sem virðist ekki hafa látið foreldrana vita.

Á föstudagskvöldið sagði stúlkan vinkonu sinni að hún gæti aldrei stigið fæti inn í skólann framar. Foreldrar hennar fundu hana svo látna í herbergi sínu á laugardagsmorguninn, en stúlkan hengdi sig.

Drengirnir fimm hafa ekki enn verið handteknir, en lögregla reyndi að nálgast upptökuna úr farsímanum. Henni hafði hins vegar verið eytt.

Drengirnir gætu átt yfir höfði sér vist á stofnun fyrir afbrotaunglinga. Hefðu þeir verið fullorðnir hefðu þeir átt allt að 12 ára fanglesi yfir höfði sér.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert