Forsætisráðherra Bretlands, Tony Blair, segir að hann sé á móti dauðarefsingum og þar skipti engu hvort um Saddam Hussein, fyrrverandi forseta Íraks, sé að ræða eða einhvern annan. Kom þetta fram á fundi forsætisráðherrans með fjölmiðlum í dag. Saddam Hussein var í gær dæmdur til dauða og hefur ákvörðunin fengið misjöfn viðbrögð.