Demókratar kusu í dag Nancy Pelosi í embætti forseta fulltrúadeildar bandaríska þingsins. Pelosi verður þar með fyrsta konan til að gegna æðsta embætti fulltrúadeildarinnar. Hún tekur formlega við embættinu í janúar þegar repúblikaninn Dennis Hastert lætur af embætti.