10 féllu og 25 særðust í sprengingu í Bagdad

Kista eins þeirra sem féllu í árásunum í gær í …
Kista eins þeirra sem féllu í árásunum í gær í Bagdad. Reuters

10 létust hið minnsta og 25 særðust þegar bílsprengja sprakk í úthverfi Bagdad í morgun. Í gær féllu í það minnst 70 í tveimur sjálfsvígsárásum í borginni. Árásin í dag var í úthverfinu Kamaliya þar sem sjítar búa einkum. Mikið ofbeldi geisar í borginni milli trúarhópa. Nýliðinn nóvembermánuður var sá blóðugasti frá því Bandaríkjamenn réðust inn í landið 2003.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert