Tilkynnt um megna gaslykt í New York

New York.
New York. Reuters

Tilkynnt hefur verið um megna gaslykt á Manhattaneyju í New York. Að sögn bandarísku Fox fréttasjónvarpsstöðvarinnar, hefur lyktin fundist víða, þar á meðal í efstu hæðum skýjakljúfa. Þá hafa borgarbúar kvartað yfir höfuðverk og ógleði. Hafa lestarferðir m.a. verið stöðvaðar að hluta meðan málið er rannsakað en ekki er talið að það tengist hryðjuverkastarfsemi.

Con Edison, stærsta gasveita í New York, segist ekki vita til að leki sé í dreifikerfi fyrirtækisins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert