Yury Golubev, 65 ára meðeigandi hins fangelsaða Mikhail Khodorkovskís í rússneska olíurisanum Yukos fannst látinn í íbúð sinni í London. Dánarorsök er ókunn.
Skotland Yard hefur ekki gefið upp neitt um andlátið en danski vefmiðillinn Børsen segir að fyrrum samstarfsmaður þeirra Golubev og Khodorkovskís, Konstantín Kagalovsky undirstriki í viðtali við Moscow Times að það sé ekkert athugavert við þetta dauðsfall.