Snjór í eyðimörkinni í Arizona

Allt á kafi í Tucson í gær.
Allt á kafi í Tucson í gær. AP

Óvænt snjókoma skildi eftir sig allt að þrjátíu sm jafnfallinn snjó í Arizona í Bandaríkjunum í gær, og gátu börn allt suður til Tucson leikið sér í þessari fátíðu ofankomu.

Veðrið sem bar snjóinn í eyðimörkina var hluti veðrabylgju sem flutti með sér snjó, ís og mikið rok í miðríkjunum og Texas og Nýju Mexíkó.

Eru að minnsta kosti ellefu banaslys í umferðinni rakin til veðursins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert