Fjögur lík fundust í íbúð í Stafangri

Fjögur lík fundust í dag í íbúð í Stafangri. Að sögn Stavanger Aftenblad er um að ræða tvo fullorðna og tvö börn og var allt fólkið í sömu fjölskyldu. Lögreglan hefur ekki viljað tjá sig um málið en boðar tilkynningu innan skamms.

Að sögn Stavanger Aftenblad fann kona, sem gert hefur hreint í íbúð fjölskyldunnar, fólkið látið inni í baðherbergi. Konan fann fyrst miða í íbúðinni þar sem stóð: Við erum inni í baðherbergi. Hringdu í lögregluna.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert