Glæpagengi beita mafíuaðferðum í Danmörku

Leikarar úr bandarísku Sopranos þáttunum. Þar er fjallað um bandarískar …
Leikarar úr bandarísku Sopranos þáttunum. Þar er fjallað um bandarískar mafíufjölskyldur og verndargreiðslur koma oft fyrir í þáttunum. Reuters

Harðsvíruð innflytjendagengi hafa stækkað og eflst í Danmörku og beita nú mafíuaðferðum víða um landið, krefja eigendur kráa, veitingastaða og skemmtistaða um „verndargreiðslur“. Með slíkri greiðslu tryggja menn sig fyrir því að gengið ráðist ekki á þá eða vinni skemmdarverk á eignum þeirra.

Glæpagengi þessi eru umsvifamikil í eiturlyfjabraski og skipulögðum glæpum. Svokölluð mótorhjólagengi falla nú í skuggann af þessum glæpamönnum. Fólk þorir ekki að kæra menn fyrir að krefjast verndargreiðslnanna þar sem það gæti þá átt von á barsmíðum eða öðru verra, að sögn danska dagblaðsins Berlingske Tidende.

Yfirrannsóknarlögreglumaðurinn Frank Jensen segir lögregluna vita af þessu en að engin kæra hafi borist vegna þessa.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert