Alþjóðaflugvellirnir Luton og Stansted í nágrenni Lundúna eru lokaðir tímabundið vegna veðurs. Mikil snjókoma hefur verið á Suður-Englandi, miðhéruðunum og Wales og varað þar við truflunum á samgöngum, bæði með lestum og bifreiðum sem og flugsamgöngum.
Engin kennsla fer fram í skólum í vestanverðri Birmingham. Nokkuð hefur verið um bilanir í lestarkerfum á fyrrnefndum svæðum. Veðurfræðingar spá því að enn muni snjóa. Þá hefur flugbrautum flugvalla í Cardiff, Bristol og Birmingham einnig verið lokað tímabundið. BBC segir glundroða hafa verið í samgöngum á Englandi og Wales á háannatíma í morgun.