Danska dagblaðinu Jyllands-Posten barst í morgun bréf með dularfyllu dufti. Bréfið er nú til rannsóknar hjá lögreglu en allur póstur sem berst til blaðsins er opnaður af sérþjálfuðu starfsfólki eftir að slíkt bréf barst til blaðsins í febrúar á síðasta ári. Þetta kemur fram á fréttavef blaðsins.