Maður blandaði sér í hóp syrgjenda, sem voru að fylgja manni til grafar í hverfi sjíta í Bagdad, og sprengdi sprengju, sem hann bar innanklæða. Að minnsta kosti sjö manns létu lífið í sprengingunni og 14 særðust.
Öryggisráðstafanir í Bagdad hafa verið hertar til muna en uppreisnarmenn hafa í kjölfarið látið til skarar skríða í auknum mæli.