Fundu 38 kíló af kókaíni í Kaupmannahöfn

Lögreglan í Kaupmannahöfn fann 38 kíló við húsleit í íbúð í borginni. Þrír menn voru staðnir að verki þar sem þeir voru að selja kókaín. Þeir voru með 2 kíló af efninu meðferðis og í kjölfarið fundust 36 kíló til viðbótar við húsleitina.

Efnið fannst í síðustu viku en lögreglan hefur ekki skýrt frá málinu fyrr í dag. Oscar Lassen, varalögreglustjóri, segir við Ritzaufréttastofuna, að um sé að ræða eitt mesta magn fíkniefna, sem fundist hafi í borginni í einu máli.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert