Ísraelskir hermenn leita herskárra Palestínumanna í Nablus

Ísraelskir hermenn lokuðu í dag af hluta borgarinnar Nablus á Vesturbakka heimastjórnarsvæðis Palestínumanna, í því skyni að handtaka eftirlýsta Palestínumenn og leggja hald á sprengiefni. Herinn gerði einnig áhlaup á hús í Nablus í gær. Stjórnvöld gefa þær skýringar á þessum aðgerðum að handtaka eigi herskáa Palestínumenn og uppræta net slíkra manna.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert