Fjórir létust og þrjátíu slösuðust í norð-vesturhluta Kína þegar sterkur vindur velti lest sem dró ellefu vagna. Lestin lenti í miklum sandstormi skömmu eftir að hún yfirgaf Turpan lestarstöðina í héraðinu Xinjiang, rúður sprungu, og á endanum fuku vagnarnir af teinunum.
Lestin var á leið til Urumqi, höfuðborgar Xinjiang en leiðinni hefur síðan verið lokað þar til veðrinu slotar. Svæðið er þekkt fyrir sterka vinda, en jafn löng lest fór út af teinunum fyrir sex árum síðan.