Lögreglan í Kaupmannahöfn hefur mikinn viðbúnað á götum miðborgarinnar í kvöld, þar sem stórir hópar ungmenna hugðust efna til mótmælafundar núna um níuleytið að íslenskum tíma. Talsmaður lögreglunnar tjáði Politiken að ómögulegt væri að segja til um hvort til óeirða komi í kvöld og nótt, líkt og í gærkvöldi.
Kaupmannahafnarlögreglunni hefur í dag verið sendur liðsauki víða að af landinu, og einnig hafa verið fengnir lánaðir brynvarðir bílar frá sænsku lögreglunni.