Hópur kvenna í Moskvu, höfuðborg Rússlands, tók sig til í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna í dag og fékk sér sundsprett í ísilagðri Moskvuá. Höggið var gat á ísinn svo hægt væri að taka sundsprett. Á myndinni sést karlmaður færa einni konunni blóm í tilefni dagsins. Heldur hefur hlýnað í Moskvuborg eftir talsverðar vetrarhörkur.