Varð tveimur ungum börnum sínum að bana

Móðir tveggja ungra barna var handtekin í San Antonio í Bandaríkjunum í gær og ákærð fyrir morð að yfirlögðu ráði en lík barna hennar fundust í vikunni vafin í plastpoka undir húsinu þar sem konan býr.

Konan, sem heitir Valerie Lopez og er 19 ára, viðurkenndi að hafa barið 18 mánaða gamla dóttur sína til bana og falið lík hennar undir húsinu. Þetta gerðist á aðfangadag. Þá viðurkenndi hún að hafa orðið 5 mánaða syni sínum að bana, tveimur mánuðum síðar, með því að leggjast ofan á hann fyrir slysni. Lopez faldi lík drengisins einnig undir húsinu.

Unnusti konunnar, Jerry Salazar að nafni, hefur verið ákærður fyrir aðild að morðunum en lögregla segir að hann hafi vitað af því að Lopez misþyrmdi börnum sínum.

Lögreglan hóf leit að þeim Lopez og Salazar á þriðjudag þegar aðrir íbúar í húsinu fundu líkin. Þeir höfðu verið að leita að orsök óþefjar, sem fundist hafði í húsinu vikurnar á undan.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert