Drukknaði þegar hann reyndi að bjarga hval

Japanskur sjómaður drukknaði þegar tilraun til að koma strönduðum búrhval til hjálpar mistókst. Sjónvarpsmenn náðu myndum af því þegar hvalurinn braust um með þeim afleiðingum, að þrír menn þeyttust í sjóinn og einn þeirra drukknaði. Hinum mönnunum tveimur var bjargað um borð í bát. Frekari tilraunum til að bjarga hvalnum var frestað.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert