Lík fannst í höfninni við ferjumiðstöð Viking Line við Stadsgårds-hafnarbakkann í Stokkhólmi í morgun. Talsmaður lögreglunnar sagði að ferjan Gabriella hefði ekki getað lagst að sökum þessa. Lögreglan sendi bát eftir líkinu og lokaði ferjumiðstöðinni.
Í Dagens Nyheter kemur fram að líkfundurinn hafi orðið um klukkan átta í morgun og að ferjan var að koma frá Finnlandi.