Norskur karlmaður hefur játað að hafa orðið 61 árs gamalli konu að bana í bænum Fredrikstad í Noregi árið 1978 en þá var maðurinn 13 ára gamall. Morðið hefur verið óupplýst þar til nú og sök mannsins er fyrnd. Hann verður ekki nefndur og fær heldur ekki refsingu.
Að sögn lögreglunnar bar maðurinn, að hann hefði verið að fremja innbrot þegar konan stóð hann að verki. Hann fylltist skelfingu og stakk konuna með hnífi áður en hann forðaði sér.