1600 farþegar fluttir frá borði

Um 1600 farþegar og áhöfn voru fluttir frá borði eftir að skemmtiferðaskip rakst á rif nálægt strönd Grikklands í dag og leki kom að því. Um þrjár stundir tók að rýma skipið en íbúar á eynni Santorini sigldu að skipinu á bátum sínum og selfluttu fólkið í land. Engan sakaði. Óttast var að skipið sykki en það var um 50 metra frá landi þegar það strandaði og byrjaði að hallast.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert