Bandaríkjamenn buðust til að hræða Írani í deilunni við Breta

Sex af sjóliðunum 15 á blaðamannafundi í Bretlandi í síðustu …
Sex af sjóliðunum 15 á blaðamannafundi í Bretlandi í síðustu viku. Reuters

Fregnir herma að Bandaríkjamenn hafi boðist til að senda herflugvélar í tíðar eftirlitsferðir yfir höfuðstöðvar íranska byltingarvarðarins á meðan deilu Írans og Bretlands um bresku sjóliðana stóð, en bresk stjórnvöld afþökkuðu boðið og báðu Bandaríkjmenn ennfremur um að skipta sér ekki af deilunni og láta lítið á hernum bera á Persaflóa.

Fréttastofan AFP hefur þetta eftir breska blaðinu The Guardian. Segir blaðið að eitt af því sem Bandaríkjamenn hafi boðist til að gera hafi verið að senda herflugvélar í eftirlitsferðir yfir íranskar herstöðvar til að sýna hve alvarlegum augum málið væri litið.

Þrem dögum áður en Íranar tóku bresku sjóliðana höndum kom annað bandarískt flugmóðurskip, og fylgiskip þess, á Persaflóann. Að beiðni breskra stjórnvalda var æfingum bandarísku skipanna, alls um 40 talsins, breytt til að þær yrðu ekki eins ógnandi. Einnig báðu Bretar Bandaríkjamenn um að forðast harðorðar yfirlýsingar.

Blaðið segir að breskir, íraskir og íranskir embættismenn væru orðnir að mestu sammála um hvað hefði í rauninni gerst þegar sjóliðarnir voru teknir höndum, það er að segja, að Íranar hafi ekki lagt á ráðin um handtökuna. Heimildamaður blaðsins kveðst telja að þetta hafi verið „staðbundin deila sem varð að milliríkjadeilu“.

The Guardian hefur eftir írönskum heimildamanni að ef þessi deila hefði komið upp milli Írana og Bandaríkjamanna hefði hún óvart getað komið af stað stríði.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert