Sprenging í íraska þinghúsinu - tveir þingmenn látnir

Íraska þinghúsið í Bagdad. Myndin er tekin við þingfund í …
Íraska þinghúsið í Bagdad. Myndin er tekin við þingfund í vetur. Reuters

Sprenging varð nú rétt í þessu í íraska þinghúsinu í Bagdag en þinghúsið er á svokölluðu græna svæði í borginni þar sem öryggisgæsla er mjög ströng. Fyrstu fréttir herma að tveir þingmenn hafi látist og margir hafi særst í sprengingunni sem átti sér stað í veitingastað í þinginu á þeim tíma er margir þingmenn sitja að snæðingi.

Afar öflug öryggisgæsla er í byggingunni og á svæðinu í kringum þingið en AP fréttastofan greinir frá því að öryggisgæsla hafi verið efld í morgun og gefur það til kynna að einhverjar grunsemdir hafi verið um yfirvofandi hættu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert