Ellefu létust í sjálfsvígsárás í Írak

A.m.k. ellefu létust og 21 særðist þegar maður framdi sjálfsvígsárás við líkvöku fjölskyldu úr röðum sjíta í dag í héraðinu Diyala, norðaustur af Bagdad. Maðurinn mun hafa gengið inn í húsið þar sem líkvakan stóð yfir og ramkvæmt árásina. Sjítar og súnítar eiga í miklum deilum í héraðinu, sem er talið það hættulegasta í Írak á eftir höfuðborginni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert