Bandaríkjamenn hvetja Rússa og Eista til að halda ró sinni

Mótmælendur við styttuna umdeildu áður en hún var fjarlægð
Mótmælendur við styttuna umdeildu áður en hún var fjarlægð AP

Tom Casey, aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði í dag að Eistlendingar hefðu verið í fullum rétti þegar minnismerki um sóvéska hermenn var flutt úr miðborg Tallinn í síðustu viku. Hann sagði þó Bandaríkjamenn hvetja Eista og Rússa til að halda ró sinni og virða tilfinningar hverra annarra.

Casey sagðist einnig hafa áhyggjur af fregnum af ofbeldi og áreitni, m.a. gegn eistneskum erindrekum og sendiráðsbyggingum í Moskvu. „Við hvetjum stjórnvöld í Moskvu til að draga úr spennu og standa undir þeirri ábyrgð sem kveðið er á um í Vínarsáttmálanum.”

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert