Belgi nokkur, sem ætlar að vera á Íslandi í júní þegar kosningar fara fram í heimalandi hans, ákvað að bjóða atkvæði sitt upp hjá netuppboðsfyrirtækinu eBay. Upphafsboðið var 2 evrur, jafnvirði um 170 króna. Að sögn belgískra fréttamiðla var auglýsingin um atkvæðauppboðið þó fjarlægð skömmu eftir að hún var sett upp.