Herskáir sjía-múslimara dönsuðu í dag í kringum brunninn danskan herbíl í bænum al-Hartha en danskur hermaður lét lífið og fimm særðust eftir að bíll þeirra ók á sprengju, sem komið hafði verið fyrir í vegarkanti og einnig var skotið á bílinn.
Að sögn AFP fréttastofunnar voru árásarmennirnir félagar í Mehdi-hernum svonefnda, vígasveitum hliðhollum sjíaklerknum Moqtada al-Sadr.