Breski Verkamannaflokkurinn tilkynnti í dag, að Gordon Brown, fjármálaráðherra, væri eini frambjóðandinn í væntanlegu leiðtogakjöri flokksins, sem á að fara fram 24. júní. Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands og leiðtogi Verkamannaflokksins, lýsti því nýlega yfir að hann myndi segja af sér 27. júní.