Lögregla í Glostrup í Danmörku stóð í vikunni 76 ára gamla konu að verki við að selja hass í íbúð sinni í Ishøj. Lögreglan fékk vísbendingu um hvað færi fram í íbúðinni og við leit þar fannst 121 gramm af hassi sem hafði verið pakkað í söluumbúðir.
Að sögn lögreglu er ljóst að konan sleppur með sekt þar sem hún hefur ekki áður gerst sek um brot gegn hegningarlögum.