Ísraelsher gerði árásir á skotmörk á Gasasvæðinu í morgun, fimmta daginn í röð. Þrír félagar í Hamassamtökunum létu lífið þegar eldflaug var skotið á bíl sem þeir voru í. Þá gerðu Ísraelsmenn einnig árás á verkstæði sem þeir segja hafa verið notað til að búa til eldflaugar, sem Hamas hefur skotið á Ísrael.
Hamas og Fatah-samtökin sömdu um vopnahlé í gær eftir hörð innbyrðis átök undanfarna daga. Svo virtist í morgun sem vopnahléið héldi.