Þrír fundust í dag látnir í sumarhúsi við Kyvatn í Syðri-Þrændalögum í Noregi, ekki er vitað um það hvað gerðist en lögregla segir dauðsföllin grunsamleg. Vefsíða dagblaðsins Aftenposten segir að húsið beri engin merki um eldsvoða að utan, en að gluggar séu þaktir sóti að innan auk þess sem brunalykt megi finna í nágrenninu.
Lögregla rannsakar nú hvort um slys hafi verið að ræða eða annars konar harmleik og hefur rætt við íbúa á svæðinu í dag, segja talsmenn lögreglu þó að ekki sé leitað að neinum að svo stöddu.