14 bandarískir hermenn féllu í Írak um helgina

Bandaríkjaher tilkynnti í kvöld, að 14 hermenn hefðu látið lífið í Írak um helgina. Þar af létust fjórir hermenn í Bagdad í dag þegar sprengja sprakk í borgarhverfi þar sem bandarískur herflokkur var við störf.

Tveir hermenn til viðbótar létu lífið í sprengjuárásum í Bagdad í dag og tveir í gær. Þá létust samtals sex hermenn annarstaðar í landinu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert