"Eyðing Ísraels yfirvofandi"

Mahmoud Ahmadinejad Íransforseti sagði í dag að hafin væri "niðurtalning" sem ljúka myndi með því að líbanskir og palestínskir vígamenn myndu eyða Ísrael. Í ræðu sem Ahmadinejad hélt í tilefni af 18. ártíð Khomeinis ajatolla og leiðtoga íslömsku byltingarinnar í Íran sagði hann að átök Ísraela og Hezbollah í Líbanon í fyrra hafi verið fyrsta skrefið í eyðingu Ísraels.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert