Spengja sprakk í Beirút

Miklir eldar brutust út í kjölfar bílsprengjunnar.
Miklir eldar brutust út í kjölfar bílsprengjunnar. Reuters

Líbanskur maður lést og þrír Sýrlendingar særðust er bílasprengja sprakk fyrir utan verksmiðju í norðurhluta Beirút í dag. Maðurinn var verkstjóri í verksmiðjunni sem fyllti á súrefniskúta. Miklir eldar brutust út í kjölfar sprengingarinnar.

Ríflega átta sprengjuárásir hafa verið gerðar í og í grennd við Beirút síðan 20. maí þegar bardagar stjórnarhersins við íslamista blossuðu upp í grennd við Tripoli.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert