Nýjar vísbendingar um hvar Madeleine er að finna

Madeleine McCann.
Madeleine McCann. Reuters

Portúgalska lögreglan hefur hafið rannsókn á svæði í nágrenni staðarins þar sem Madeleine McCann numin á brott í byrjun maí. Var ákveðið að hefja rannsókn að nýju á þessu svæði eftir að hollenska dagblaðinu De Telegraaf barst nafnlaust bréf þar sem fram kom að lík hinnar fjögurra ára gömlu Madeleine væri grafið undir grjóthrúgu. Þetta kemur fram á fréttavef Sky-sjónvarpsstöðvarinnar.

Madeleine McCann var rænt þann 3. maí sl. er hún var í orlofi með foreldrum og systkinum í Algarve-héraði í suðurhluta Portúgal.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert