Stríðsglæpamaður handtekinn í Svartfjallalandi

Lögregla í Svartfjallalandi hefur handtekið Vlastimir Djordjevic, fyrrum yfirmann serbnesku lögreglunnar, en stríðsglæpadómstóllinn í Haag hefur ákært Djordjevic fyrir stríðsglæpi í tengslum við stríðið í Kosovo á árunum 1998 til 1999.

Saksóknarar við stríðsglæpadómstólinn sögðu í dag, að handtakan hefði verið sameiginlegt verkefni dómstólsins og stjórnvalda í Serbíu og Svartfjallalandi. Verið sé að flytja Djordjevic til Haag.

Vlastimir Djordjevic.
Vlastimir Djordjevic. AP
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert