Japanskir kokkar fara á taugum vegna túnfisks

Þessi japanski sushi-kokkur virðist hafa hugmyndaflugið í lagi. Hann ætti …
Þessi japanski sushi-kokkur virðist hafa hugmyndaflugið í lagi. Hann ætti því ekki að vera í vandræðum með að finna eitthvað í staðinn fyrir túnfisk í sushibitana sína. Reuter

Skortur á túnfiski er farið að valda japönskum kokkum sífellt meiri heilabrotum. Kokkar í Japan eru því farnir að prófa sig áfram með allskyns kjöt í sushi-rétti. En vill einhver fá sér dádýra-sushi eða hrossakjöts-sushi í landi þar sem túnfiskur er samofinn matarmenningu og endurspegla sjálfstraust heillar þjóðar ?

Í japönsku eru til ótal mörg nöfn yfir túnfisk en það endurspeglar mikilvægi hans í japanskri matargerð. Nú eru alþjóðlegar hömlur á túnfiskveiðum eru orðnar meiri og tylft fiskiþjóða samþykktu á síðasta ári að minnka túnfiskveiðar um 20% á ári. Á sama tíma eru japanskir matgæðingar á barmi taugaáfalls.

„Þetta er eins og nautasteikur væru ekki lengur til í Ameríku" er haft eftir Tadashi Yamagata, formanni Landssambands japanskra sushi-kokka, í The New York Times í dag. „Sushi án túnfisk er einfaldlega ekki sushi"

Stór hluti af vandamálinu er að vinsældir sushi og sashimi hafa aukist í heiminum og sérstaklega í nýríkum löndum á borð við Rússland, Suður-Kóreu og Kína. Með minna framboði hefur verðið á túnfiski rokið upp um þriðjungog kemur það illa við eigendur japanskra sushi-veitingastaða en Japanir kaupa þriðjung af veiddum túnfiski í heiminum.

Túnfiskurinn tákn um efnahagslega velgengni

Sumir segja líka að taugaveiklunin út af túnfiskinum sé samhangandi við áhyggjur Japana um niðursveiflur í efnahagsástandi landsins, borið saman við nágrannaríkið Kína. Túnfiskur hafi löngum verið tákn um efnahagslega velgengi Japans og skortur á tegundinni endurspegli veikari stöðu Japana í heimsviðskiptum.

Því er ljóst að mikil pressa er á japönskum sushi-kokkum þessa dagana og hugmyndaflut þeirra og hefur verið talað um að nota reykt dádýr eða hrossakjöt í staðinn fyrir túnfisk eða jafnvel reykta önd með majónesi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert