Ayman al-Zawahiri, annar af leiðtogum al-Qaeda hryðjuverkasamtakanna, lýsir stuðningi við Hamassamtök Palestínumanna í ávarpi, sem sett hefur verið á netið.
Segir al-Zawahiri, að það verði að styðja heilaga stríðsmenn í Palestínu, þar á meðal Hamasstríðsmennina þrátt fyrir öll þau mistök, sem leiðtogar þeirra hafi gert.
Íslamskir stríðsmenn Hamas tóku völdin á Gasasvæðinu fyrir 10 dögum.