Mannræningjar Alans Johnston fréttaritara BBC á Gaza, hryðjuverkahópur sem nefnist Íslamski herinn, hefur birt myndband af honum þar sem hann er látinn klæðast því sem sagt er að sé sprengjuvesti og hóta að sprengja það ef reynt verði að frelsa hann með valdi.
Samkvæmt BBC er þetta í annað sinn sem slíkt myndband birtist síðan Johnston var rænt þann 12. mars síðast liðinn.
Myndbandið birtist á vefsíðu sem mannræningjarnir nota og í því útskýrir Johnston sjálfur að þetta sé sprengjuvesti og að viðræður um lausn hans hafi strandað er Hamas-samtökin og vestræn ríki hafi reynt að þvinga fram hernaðarlega lausn á deilunni.