Schwarzenegger síðasti gestur Blairs

Arnold Schwarzenegger, fylkisstjóri Kaliforníu.
Arnold Schwarzenegger, fylkisstjóri Kaliforníu. Reuters

Vöðvabúntið og ríkisstjóri Kaliforníu verður síðasti gestur Tony Blairs áður en hann skila lyklunum af Downingstræti 10 á miðvikudaginn. Fyrrum leikarinn og vaxtarræktarkappinn Schwarzenegger tekur þátt í umhverfisráðstefnu í London og vill ræða við Blair það mál. Eftir fund þeirra verður haldinn blaðamannafundur og það verður síðasta embættisverk Blairs sem forsætisráðherra Bretlands.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert