Þýskur unglingur ásakaður um barnamisnotkun

Kossaflens á tyrkneskri baðströnd endaði illa hjá þýskum dreng. Hann situr nú í fangelsi fyrir að hafa kysst 13 ára gamla breska stúlku. Þetta kemur fram á fréttavef Der Spiegel.

Sautján ára gamli menntaskólaneminn Marco Weiss situr í fangelsi í Tyrklandi eftir að hafa eytt kvöldstund með breskri stúlku, sem reyndist vera aðeins 13 ára gömul. Þau hittust á baðströnd í Antalay í Tyrklandi og sagðist stúlkan vera 15 ára. Rannsóknarlögreglan í Tyrklandi handtók Weiss þann 11. apríl síðastliðinn fyrir að hafa káfað á stúlkunni kvöldið áður og ásakar hann um barnamisnotkun. Hann hefur verið í haldi lögreglu í tvö mánuði, en formleg kæra hefur ekki verið gefin út.

Ef Weiss verður fundinn sekur má hann eiga von á að eyða allt að átta árum í fangelsi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert